Kóngavegur keppir í Sviss 20. júlí 2010 09:00 Kóngavegur tekur þátt í kvikmyndahátíðinni í Locarno í Sviss í ágúst.
Kvikmyndin Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdóttur hefur verið valin til að taka þátt í kvikmyndahátíðinni í Locarno í Sviss í ágúst. Locarno-hátíðin er ein af stærstu evrópsku kvikmyndahátíðunum sem eru haldnar ár hvert. Hún er nú haldin í 63. skipti. „Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Valdís og telur að um góða kynningu sé að ræða. „Ég held að það sé sama á hvaða kvikmyndahátíð þú ferð, maður fær alltaf góða kynningu. En dreifingaraðilarnir að myndinni eru ánægðir með að hún sé að fara þarna.“ Þar á hún við þýska fyrirtækið Beta Cinema sem keypti nýverið dreifingarréttinn að Kóngavegi og mun sjá um að koma myndinni að á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn. Í Locarno tekur Kóngavegur þátt í keppni sem nefnist Filmmakers of the Present þar sem upprennandi leikstjórar taka þátt með fyrstu eða aðra mynd sína. Valdís verður sjálf viðstödd hátíðina ásamt tveimur leikurum myndarinnar, þeim Nínu Dögg Filippusdóttur og Gísla Erni Garðarssyni. Að lokinni sýningu Kóngavegs munu þau svara spurningum áhugasamra áhorfenda. Á meðal annarra leikara í myndinni eru Björn Hlynur Haraldsson og Þjóðverjinn Daniel Brühl sem sló í gegn í mynd Quentins Tarantino, Inglorious Basterds. - fb
Mest lesið Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Menning Snorri og Nadine eignuðust son Lífið Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Lífið Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Lífið Íris Svava og Arnþór selja fallega íbúð á besta stað Lífið Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Lífið Ástfangnar í fjörutíu ár Lífið Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Lífið „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Lífið Harry Potter stjarna tveggja barna faðir Lífið Fleiri fréttir Snorri og Nadine eignuðust son Íris Svava og Arnþór selja fallega íbúð á besta stað Harry Potter stjarna tveggja barna faðir Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Ástfangnar í fjörutíu ár Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Infocapital Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Jiggly Caliente dragdrottning látin „Prófið að plokka og sjáið árangurinn“ Björn plokkar í stað Höllu „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Krakkatían: Pokémon, spænska og hjólreiðakeppni Halla og Biden hittust í útför páfans Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Fréttatía vikunnar: Frans páfi, Kaffi kjós og tónleikar Hildur Vala og Mikael Kaaber í aðalhlutverkum Moulin Rouge Vonast til að fá fullkomna sundlaug í Reykjadal Raf- og danstónlistarveisla í Austurbæjarbíó Ekkert sundfataatriði í Ungfrú Ísland unglinga Sérfræðingar deila um typpi refilsins en Sigríður Hagalín er búin að telja Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Glæsihús á Seltjarnarnesi á 240 milljónir Fór í tvær lýtaaðgerðir á sama deginum Á eiginmann og kærasta og allir sáttir Öskurdrottningin Lar Park Lincoln er látin Sjá meira