Lífið

Ágætis bíójól fram undan

Kvikmyndin Tron þykir mikið augnakonfekt en hún skartar Óskarsverðlaunahafanum Jeff Bridges í aðalhlutverki. Kvikmyndin Gauragangur verður frumsýnd á annan í jólum eins og Little Fockers. Á nýársdag taka síðan trúðarnir Casper og Frank öll völd í íslenskum kvikmyndahúsum þegar Klovn: The Movie verður frumsýnd.
Kvikmyndin Tron þykir mikið augnakonfekt en hún skartar Óskarsverðlaunahafanum Jeff Bridges í aðalhlutverki. Kvikmyndin Gauragangur verður frumsýnd á annan í jólum eins og Little Fockers. Á nýársdag taka síðan trúðarnir Casper og Frank öll völd í íslenskum kvikmyndahúsum þegar Klovn: The Movie verður frumsýnd.
Jól og áramót eru yfirleitt ágætis tími til að skella sér í kvikmyndahús. Íslenskar unglingaraunir, tæknibrelluskrímsli og danskir grínistar eru meðal þess sem rekur á fjörurnar.

Kvikmyndin Gauragangur var frumsýnd í gær í Smárabíói en hún fer í almennar sýningar á annan í jólum. Þetta er önnur kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar í fullri lengd, sú fyrsta hét Astrópía og sló eftirminnilega í gegn.

Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Hauks Símonarsonar og segir frá raunum og ævintýrum hins unga Orms Óðinssonar og pælingum hans um lífið og tilveruna. Hópur ungra og upprennandi leikara fer með aðalhlutverkin í myndinni, þar fremst í flokki eru þau Alexander Briem sem leikur Orm, Hildur Berglind Arndal og Eygló Hilmarsdóttir. Þau eru dyggilega studd af reynslu­boltum á borð við Stein Ármann, Þorstein Bachman og Þrúði Vilhjálmsdóttur.

Jeff Bridges leikur eitt aðalhlutverkanna í tæknibrellurisanum Tron: Legacy sem verður frumsýndur í kvikmyndahúsum um helgina. Bridges lék einmitt einnig aðalhlutverkið í samnefndri mynd sem Disney-fyrirtækið frumsýndi fyrir næstum þrjátíu árum. Tron segir frá hinum unga og rótlausa Sam Flynn, sem á erfitt með að sætta sig við hvarf föður síns fyrir tuttugu árum. Sá var einn fremsti stafræni hönnuður heims og hafði hannað heim sem hann taldi geta breytt vitundarstigi jarðarbúa. Flynn kemst á snoðir um hvar þessi heimur er geymdur og fyrr en varir er hann kominn á slóð síns horfna föður. Auk Bridges leika þau Garret Hedlund og Olivia Wilde aðalhlutverkin í fyrstu mynd leikstjórans Joseph Kosinski.

Gamanmyndin Little Fockers verður frumsýnd á annan í jólum en hún er þriðja myndin um ansi skrautleg samskipti Gaylord Focker og tengdapabba hans Jacks. Að þessu sinni er það barnaafmæli sem er sögusviðið og Jack hefur eðlilega miklar áhyggjur af því að Gaylord sé ekki vandanum vaxinn. Aðalhlutverkin eru sem fyrr í höndum Bens Stiller og Roberts De Niro en meðal annarra leikara má nefna Jessicu Alba, Barböru Streisand, Dustin Hoffman og Owen Wilson.

Og svo eru það dönsku trúðarnir í Klovn, þeir Frank Hvam og Casper Christensen. Myndin hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu hér á landi enda nutu þættirnir gríðarlegra vinsælda. Myndin er vegasaga og segir frá því þegar Frank ákveður að taka á sig rögg og hyggst keppa í kanósiglingum ásamt ellefu ára gömlum frænda sínum. Því miður, fyrir Frank og frændann er Casper með í för og eins og áhorfendum Klovn ætti að vera kunnugt nær heili Caspers aðeins utan um eitt atriði þegar hann er sloppinn frá frúnni; að eiga náin kynni við hitt kynið. Myndin verður frumsýnd 1. janúar.

freyrgigja@frettabladid.is
Alexander Briem/ Fá góðar myndir sem eru auðveldar til útskurðar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.