Lífið

Vilja byggja upp orðspor íslenska tískuiðnaðarins

Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, situr fyrir miðju. Hátíðin á að stuðla að sýnileika íslenskrar hönnunar á erlendum vettvangi.Mynd/Hörður ellert ólafsson
Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, situr fyrir miðju. Hátíðin á að stuðla að sýnileika íslenskrar hönnunar á erlendum vettvangi.Mynd/Hörður ellert ólafsson
Reykjavík Fashion Festival er viðburður sem stofnað var af nokkrum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að starfa á sviði hönnunar og tónlistar. Viðburðurinn á að stuðla að sýnileika íslenskrar tísku og hönnunar á erlendum vettvangi og auka samstarf meðal íslenskra hönnuða og listamanna.

Þeir sem koma að skipulagningu Reykjavík Fashion Festival eru meðal annars E-Label, Nikita, Birna, Thelma-Design, Mundi Design og Faxaflói auk annara. Viðburðurinn mun fara fram dagana 19. og 20. mars og að sögn skipuleggjenda hátíðarinnar verður dagskráin fjölbreytt og spennandi. Erlendum fjölmiðlamönnum verður meðal annars boðið á hátíðina til að tryggja góða umfjöllun í erlendum fjölmiðlum.

„Hópurinn hefur verið að vinna að þessu síðan í september og það hefur verið mikið að gera hjá okkur undanfarið við allan undirbúning. Þeir sem standa að þessu hafa allir mjög góð sambönd innan tískuheimsins, bæði hér heima og erlendis, sem við ætlum að nýta okkur til að gera viðburðinn glæsilegan úr garði. Svo mun viðburðafyrirtækið Faxaflói sjá um tónlistarviðburði sem taka við seinna um kvöldið,“ útskýrir Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Fashion Festival. Hún segir mikilvægt að bæta ímynd tískuiðnaðarins á Íslandi eftir Iceland Fashion Week, sem margir töldu vera klúður.

Ingibjörg segir hönnuði geta sótt um þátttöku á heimasíðu hátíðarinnar innan skamms en segir þátttöku einhverjum takmörkunum háð. „Við gerum ráð fyrir að um tuttugu manns geti tekið þátt nú í ár og er það vegna þess að húsnæðið rúmar ekki fleiri en vonandi eykst sá fjöldi á næstu árum.“

Sérstakur kynningarfundur verður haldinn í Hafnarhúsinu á morgun og hefst hann klukkan 20.00. Ingibjörg hvetur alla hönnuði til að mæta á fundinn og kynna sér viðburðinn. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um RFF á vefsíðunni www.rff.is. - sm
RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.