Innlent

Eldur í íbúðarhúsi á Egilsstöðum

Eldur kviknaði í íbúðarhúsi á Egilsstöðum seint í gærkvöldi. Þegar slökkvilið kom á vettvang var eldur laus í þvottahúsi og gekk slökkvistarf vel. Engan íbúanna sakaði og reykræsti slökkviliðið húsið. Eldsupptök eru ókunn.

Svo var eldur kveiktur í ruslagámi í iðnaðarhvefi í Reykjanesbæ í nótt. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins áður en hann næði frekari útbreiðslu, en brennuvargurinn komst undan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×