Lífið

Sænski glæpasagnaskólinn slær í gegn

Höfundurinn Lapidus, höfundur Snabba Cash, er sjálfur lögfræðingur og hefur varið marga af alræmdustu misindismönnum Svíþjóðar.Fréttablaðið/Stefán
Höfundurinn Lapidus, höfundur Snabba Cash, er sjálfur lögfræðingur og hefur varið marga af alræmdustu misindismönnum Svíþjóðar.Fréttablaðið/Stefán

Kvikmyndin Snabba Cash, eða Fundið fé eins og hún heitir á íslensku, er sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Myndin er harðsoðinn og raunsær krimmi sem segir sögu undirheima Stokkhólms frá sjónarhóli glæpamanna. Aðalpersónurnar eru þrjár:

Jorge dópsali sem sleppur úr fangelsi og hyggur á hefndir, JW sem lætur ríka og fræga fólkið fá kókaínið sitt og svo Mrado, serbneski hrottinn. Þeir eiga það eitt sameiginlegt að dreyma um skjótfenginn gróða.

Fundið fé er byggt á samnefndri kvikmynd sænska rithöfundarins Jens Lapidus. Í viðtali við Fréttablaðið fyrir tæpum tveimur árum sagðist hann vilja skrifa allt öðruvísi bók en sænski glæpasagnaskólinn er þekktastur fyrir með rithöfunda á borð við Mankell, Stieg Larsson og Marklund í kennarahlutverkinu.

„Ég er sannfærður um að ef maður tæki allar þessar bækur og legði þær hver ofan á aðra myndirðu fá út eina og sömu bókina," sagði Lapidus, sem er lögfræðingur í Stokkhólmi og hefur varið marga af alræmdustu misindismönnum Svíþjóðar.

Snabba Cash hefur slegið í gegn á Norðurlöndunum og samkvæmt fréttum frá Vesturheimi er Hollywood áhugasamt. Því hefur jafnframt verið haldið fram að sykursæta High Shcool Musical-stjarnan Zac Effron hafi mikinn áhuga á að fá hlutverk í endurgerðinni. Sem yrði dágott hliðarspor frá hans ferli.- fgg




Tengdar fréttir

Skjótfenginn gróði í Stokkhólmi

Virkilega smart krimmi þar sem kynt er hægt og rólega undir áhugaverðum persónum þangað til allt sýður upp úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.