Pálmi Haraldsson, sem hefur verið stefnt af Glitni ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Gltinis, segist ekki hafa beitt blekkingum til þess að fá milljarð lánaðan. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér en þar segir orðrétt:
Í stefnu slitastjórnar Glitnis banka hf. á hendur mér og fleirum kemur meðal annars fram að ég hafi náð einum milljarði út úr Glitni banka hf. fyrir mig persónulega, nánast með blekkingum.
Hið rétta er að lánið var veitt Fons hf, fór til greiðslu skuldbindinga Fons hf við Glitni banka hf. og bætti þar með tryggingastöðu bankans. Ég hagnaðist ekki persónulega á þessum viðskiptum, heldur var einn milljarður notaður til að greiða inn á lán Fons hf. við Kaupthing Bank í Luxembourg. Hefði slitastjórn Glitnis banka hf skoðað bókhald Fons hf, eins og gera verður kröfu um, hefði sést, svart á hvítu að títtnefndur milljarður var færður á reikning Fons hf en ekki minn persónulega reikning.
Þá segir Pálmi að stefa Glitnis sé byggð á vitlausum bókhaldsupplýsingum og að umræðan sé því ekki sannleikanum samkvæm.
Orðrétt segir Pálmi:
„Vert er að taka fram í þessu sambandi, að bústjóri Fons hf hefur undir höndum allt bókhald félagsins. Þar hefði slitastjórn Glitnis banka hf. getað fengið réttar upplýsingar áður en stefnan var gefin út. Þeim hefði því verið í lófa lagið að fá öll gögn en ekki bara sum áður en þeir hófust handa. Þegar slíkum vinnubrögðum er beitt, getur umræðan aldrei orðið sannleikanum samkvæmt.
Mér finnst alvarlegt að slitastjórn Glitnis banka hf. byggi á slíkum málatilbúnaði. Þá vil ég benda á að þrátt fyrir að stefnan komi frá slitastjórn Glitnis banka hf. er hún með öllu tilefnislaus. Fram á það verður sýnt í dómsal.
Að öðru leyti mun ég ekki tjá mig frekar um þetta mál í fjölmiðlum."
Dómsmálið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok apríl. Bankinn krefst þess að þeir endurgreiði 6 milljarða króna lán.