Innlent

Ekki svigrúm til að fækka kennurum þrátt fyrir fjölgun

Eiríkur Jónsson.
Eiríkur Jónsson. Mynd/Anton Brink
Grunnskólakennurum fjölgaði um 43% á tíu ára tímabili, en á sama tíma fjölgaði nemendum aðeins um tæp 3%. Formaður Kennarasambandsins segir þetta ekki þýða að svigrúm sé til að fækka kennurum.

Talsvert svigrúm er talið vera til hagræðingar í grunnskólum landsins. Í greinargerð menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að stöðugildum kennara við grunnskóla hafi fjölgað um 43% frá árinu 1998 til 2008. Á sama tíma fjölgaði nemendum um 2,6%. Frá 2003 til 2008 fjölgaði stöðugildum kennara um 13% en nemendum fækkaði um 3%. Þá kemur fram að kostnaður við grunnskólarekstur á Íslandi sé hærri en í öðrum löndum OECD.

Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segir að árið 1992 hafi verið framkvæmdur mikill niðurskurður í grunnskólum.

„Með grunnskólalögunum 1995 var ákveðið að skila þessu til baka í áföngum og því lauk ekki fyrr en upp úr aldamótum. Töluvert af kostnaðaraukanum má rekja til þess."

Í sömu lögum hafi verið ákveðið að einsetja alla grunnskóla, það hafi leitt til mikillar fjölgunar stöðugilda. Áður hafi kennarar kennt tveimur bekkjum og verið með mikla yfirvinnu. Nú sé sú yfirvinna horfin og það komi fram í fjölgun kennara. Eiríkur segir dýrt að reka skóla í strjábýlu landi þar sem kjörorðið er skóli fyrir alla. Metnaður samfélagsins hafi verið í þá átt að halda uppi skólum alls staðar á landinu, og án aðgreiningar, og það kosti sitt.

Aðspurður segir Eiríkur ekki nægt svigrúm til að fækka kennurum. „Nei, ef menn vilja stíga til baka langt aftur í tímann og taka upp geturöðun í bekki og þess háttar sem ég held að enginn núlifandi Íslendingur vilji sjá gerast. Það er ekki eitthvað sem á að bjóða upp á á 21. öldinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×