Lífið

Kammerkór í Kristskirkju í kvöld

Kristskirkja í Landakoti er rómuð fyrir hljómburð sinn til söngs.
Kristskirkja í Landakoti er rómuð fyrir hljómburð sinn til söngs.

Í kvöld verða tónleikar í Kristskirkju í Landakoti og hefjast kl. 20. Þeir bera yfirskriftina „María drottning, mild og skær" og þar kemur fram Kammerkór Reykjavíkur undir stjórn Sigurðar Bragasonar. Einsöngvarar koma úr röðum kórfélaga. Á efnisskránni er íslensk og erlend kirkjutónlist.

Elsta íslenska verkið sem er á efnisskránni er álitið vera frá 1524 og tengist því kaþólskri trú á Íslandi. Einnig verða frumflutt tvö verk eftir stjórnanda kórsins við ljóð eftir Jón Arason, biskup á Hólum. Þá eru verk eftir Pál Ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson, Jakob Hallgrímsson og fl.

Á efnisskránni er einnig alþjóðleg kirkjutónlist m.a. eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Franz Liszt. Efnisskráin tengir að vissu leyti saman íslenska og erlenda kirkjutónlist sem samin er í kaþólskum og lúterskum sið.

Kammerkór Reykjavíkur var stofnaður 27. febrúar 2002. Kórinn hefur haldið tónleika í Reykjavík og víða um land. Hann starfaði til ársins 2006 undir stjórn Sigurðar Bragasonar. Veturinn 2006-2007 stjórnaði Björn Thorarensen kórnum. Eftir tveggja ára hlé hóf kórinn aftur starfsemi haustið 2009 undir stjórn Sigurðar Bragasonar. - pbb




Tengdar fréttir

Ardís úr Idol syngur einsöng

Ardís Ólöf Víkingsdóttir, sem lenti í fjórða sæti í fyrstu Idol-þáttaröðinni, útskrifaðist úr söngnámi í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. Hún syngur einsöng með Kammerkór Reykjavíkur í Kristskirkju í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.