Handbolti

Íris framlengir við Fram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér er Íris ásamt Ólafi Arnarssyni, formanni handknattleiksdeildar Fram, við undirskriftina.
Hér er Íris ásamt Ólafi Arnarssyni, formanni handknattleiksdeildar Fram, við undirskriftina. Mynd/Heimasíða Fram

Landsliðsmarkvörðurinn Íris Björk Símonardóttir hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Fram. Nýi samningurinn er til tveggja ára.

Íris gekk í raðir Fram frá Gróttu fyrir síðasta tímabil og stóð sig afar vel í marki Fram í vetur en Framstúlkur urðu bikarmeistarar og töpuðu síðan í úrslitum Íslandsmótsins gegn Val.

Fram ætlar sér greinilega að næla í þann stóra næsta vetur en Einar Jónsson mun þjálfa liðið áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×