Golf

Stáltaugar hjá Oosthuizen - Tiger missti af lestinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger gengur illa að finna sitt fyrra form. Hann var oft svekktur í dag.
Tiger gengur illa að finna sitt fyrra form. Hann var oft svekktur í dag.

Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen hefur fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn á Opna breska meistaramótinu í golfi. Tiger Woods hefur ekki komist almennilega í gang og er búinn að missa af lestinni.

Oosthuizen leiddi fyrir daginn í dag og héldu margir að hann myndi fara á taugum. Svo reyndist alls ekki vera því hann spilaði frábært golf og kom í hús á 69 höggum. Hann er samtals á 15 höggum undir pari og til alls líklegur á morgun.

Englendingurinn Paul Casey var frábær í dag og lék á 67 höggum. Hann er samtals á 11 höggum undir pari og einn í öðru sæti.

Tiger Woods lék á 73 höggum í dag eða einu höggi yfir pari. Hann er því samtals á 3 höggum undir pari. Hann fékk fjóra skolla og þrjá fugla.

Svíinn Henrik Stenson lék frábærlega í dag og kom í hús á 67 höggum. Hann er á 7 höggum undir pari samtals og gæti blandað sér í baráttuna á morgun með álíka spilamennsku.

Staða efstu manna:

Louis Oosthuizen - 15

Paul Casey - 11

Martin Kaymer - 8

Henrik Stenson - 7

Alejandro Canizares - 7

Lee Westwood - 7

Dustin Johnson - 6

Tiger Woods - 3






Fleiri fréttir

Sjá meira


×