Lífið

Erum engir þungarokkarar

swords of chaos Rokksveitin heldur útgáfutónleika á Faktorý Bar annað kvöld.
swords of chaos Rokksveitin heldur útgáfutónleika á Faktorý Bar annað kvöld.

Útgáfutónleikar rokksveitarinnar Swords of Chaos verða haldnir annað kvöld í tilefni af fyrstu plötu sveitarinnar, The End Is As Near As Your Teeth, sem kom út í síðustu viku á vegum Kimi Records.

„Við erum búnir að vera að spila saman örugglega í þrjú ár. Elstu lögin eru orðin ansi gömul þannig að við erum voða fegnir að geta farið að huga að einhverju nýju eftir þetta,“ segir Úlfur Hansson, liðsmaður sveitarinnnar.

Tónlist Swords of Chaos er kraftmikil og ágeng. Úlfur vill samt ekki flokka hana sem þungarokk. „Við erum engir þungarokkarar í okkur. Þetta er þungarokk fyrir þá sem fíla ekki þungarokk,“ segir hann.

„Ætli þetta flokkist ekki undir harðkjarnatónlist en við erum ekkert inni í henni. Enginn okkar er eitthvað að hlusta á svoleiðis tónlist.“ Þess má geta að blásturshljóðfæri koma við sögu í þremur lögum á plötunni og mun blásturssextett einmitt spila á útgáfutónleikunum.

Úlfur er nýkominn til landsins eftir að hafa spilað á bassa með Jónsa á tónleikaferð hans um heiminn.

„Við höldum áfram eftir Airwaves og förum til Norður-Ameríku. Þetta er búið að vera ótrúlegt. Ég hef aldrei farið á svona túr áður.“ Hann viðurkennir að það séu viðbrigði að færa sig frá hinum poppaða Jónsa yfir til Swords of Chaos. „Það er mjög hressandi.“

Útgáfutónleikarnir verða á Faktorý Bar og hefjast klukkan 22. Einnig stíga á svið Logn, Markús & The Diversion Sessions og Reykjavík!. Forsala miða er í Havaríi og er miðaverð 1.000 kr. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.