Bíó og sjónvarp

Downey til Oz

Í ævintýramynd Downey leikur Tony Stark í Iron Man 2 og hefur víst einnig áhuga á að leika í Galdrakarlinum frá Oz eftir Sam Mendes.
Í ævintýramynd Downey leikur Tony Stark í Iron Man 2 og hefur víst einnig áhuga á að leika í Galdrakarlinum frá Oz eftir Sam Mendes.
Eins og kemur fram hér annars staðar á síðunni hefur Bond 23 verið frestað um óákveðinn tíma. Það þýðir að leikstjóri myndarinnar, Sam Mendes, verður að finna sér eitthvað annað að gera. Mendes var auðvitað ekki lengi að finna nýtt verkefni því hann er orðaður við endurgerð á hinni sígildu kvikmynd Galdrakarlinn í Oz eða The Wizard of Oz.

Reyndar er Mendes ekki sá eini sem langar að gera kvikmynd eftir þessu sígilda ævintýri því alls eru 23 handrit í gangi sem byggja með einum eða öðrum hætti á sögunni um galdrakarlinn. Kvikmynd Mendes verður þó að teljast líklegust því sá orð­rómur er á kreiki að stórleikarinn Robert Downey Jnr. hafi mikinn áhuga á að leika í myndinni en Downey verður að teljast einhver besta upprisa í Hollywood síðan John Travolta steig trylltan dans í Pulp Fiction.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×