Innlent

Þjóðvegurinn opnaður - vatnavextir á Sandskeiði

MYND/Valgarður

Þjóðvegur-eitt, við Seljalandsá, skammt frá Markarfljóti, var opnaður í nótt að viðgerð lokinni, en hann rofnaði í vatnavöxtum við brúnna í gær.

Umferð var veitt um hjáleið eftir flóðvarnagarði á meðan, en um tíma vatnaði yfir hann líka.

Síðdegis í gær og í gærkvöldi var Sandskeiðið, austan Reykjavíkur, líka eins og hafsjór yfir að líta og um tíma rann eitthvað yfir veginn, en litlar sem engar skemmdir urðu. Frekari fregnir hafa ekki borist af tjóni vegna vatnavaxta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×