Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 3,09 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar, sem hækkaði um 1,95 prósent, og Færeyjabanka, sem fór upp um 0,95 prósent.
Ekkert félag lækkaði í verði í dag.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,44 prósent og endaði í 933,9 stigum.