Lífið

Andi Lennon enn á sveimi

ono og lennon Yoko Ono ásamt John Lennon skömmu áður en hann var myrtur.
ono og lennon Yoko Ono ásamt John Lennon skömmu áður en hann var myrtur.

Yoko Ono, ekkja Bítilsins Johns Lennon, ákvað að búa áfram í Dakota-byggingunni í New York vegna þess að hún telur anda hans vera þar á sveimi. Lennon var myrtur fyrir utan bygginguna árið 1980 af brjáluðum aðdáanda.

„John er enn þá hér. Straumarnir sem hann skildi eftir sig, staðirnir sem hann snerti. Skoðið bara DNA-leifarnar. Það er allt til staðar,“ sagði Ono. Hún var gagnrýnd harðlega fyrir að halda áfram að búa þarna eftir að hann dó.

„Þetta voru kynþátta- og kynjafordómar: „Við hvíta fólkið gætum aldrei gert þetta – búið á staðnum þar sem einhver nákominn dó,“ sagði hún um ummælin sem hún heyrði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.