Bíó og sjónvarp

Baltasar forsýnir Inhale í Berkeley

Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, verður forsýnd í Berkeley-háskólanum í Bandaríkjunum á ráðstefnu um ólöglega sölu og smygl á líffærum úr fólki.
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, verður forsýnd í Berkeley-háskólanum í Bandaríkjunum á ráðstefnu um ólöglega sölu og smygl á líffærum úr fólki. Mynd/Anton Brink

Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, er önnur tveggja mynda sem sýndar verða á ráðstefnu Berkeley-háskólans um ólöglega sölu og smygl á líffærum úr fólki. Hin myndin er margverðlaunuð heimildarmynd að nafni H.O.T, Human Organ Trafficking.

Meðal gesta á ráðstefnunni verður mannréttindafrömuðurinn Harry Wu en hann hefur barist gegn ólöglegri sölu á líffærum í Kína sem er umfangsmikill iðnaður þar í landi. Hann sat sjálfur í kínversku fangelsi í nítján ár fyrir baráttu sína.

Baltasar segir að forsvarsmenn ráðstefnunnar hefðu bara heyrt af myndinni og að þetta færi ekkert í gegnum hann. „Þetta er bara svolítið skondið og skemmtilegt," segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Ekki liggur fyrir nákvæm dagsetning á því hvenær myndin fer í almenna dreifingu en leikstjórinn segir þau mál vera að skýrast. „Það eru alltaf svona forsýningar í gangi til að skapa eitthvert umtal en þessi forsýning er óneitanlega svolítið sérstök," segir Baltasar.

Með helstu hlutverkin í Inhale fara þau Diane Kruger, Dermot Mulroney, Sam Shepard og Rosanne Arquette. - fgg










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.