Matur

Íslenskir villisveppir, nautamergur og grænkál

Vera Einarsdóttir skrifar
Jóhannes Steinn notar aðallega norrænt hráefni og er sveppaforrétturinn alíslenskur.
Jóhannes Steinn notar aðallega norrænt hráefni og er sveppaforrétturinn alíslenskur.

Jóhannes Steinn Jóhannesson, matreiðslumaður ársins 2008 og 2009 og kokkur á veitingastaðnum Vox, tekur þátt í heimsmeistarakeppni í matreiðslu í Lúxemburg í nóvember. Þangað stefnir hann með kokkalandsliði Íslands og eru stífar æfingar fram undan.

Á Vox er norræn matarhefð í hávegum höfð og meðal hráefnis sem Jóhannes Steinn notar eru íslenskir villisveppir úr Skorradal. „Stundum förum við sjálfir að tína en erum auk þess með hjálparkokka á staðnum.“

Jóhannes Steinn gefur uppskrift að sveppaforrétti sem hann skerpir á með nautamerg.

Jóhannes Steinn.

Íslenskir villisveppir, nautamergur og grænkál

Forréttur fyrir fjóra

1 box Flúðasveppir

250 g íslenskir kóngasveppir (má nota aðra villisveppi)

2 shallot-laukar

1 hvítlauksgeiri

1 l kjúklingasoð (má nota vatn og kraft)

grænkál frá Eymundi Magnússyni bónda í Vallanesi

mergur innan úr einum nautabeinlegg

salt

Kóngasveppasoð:

Svitið laukinn og sveppina í potti, bætið soði við og sjóðið í 30 mínútur. Sigtið og smakkað til með salti.

Steiktir sveppir:

Steikið sveppina á snarpheitri pönnu í olíu og smá smjöri. Gott er að setja smátt saxaðan shallot-lauk út á sveppina eftir á. Kryddið með salti. Hér má nota hvaða villisveppi sem er. Jóhannes Steinn notar kantarellu, furusvepp, kóngasvepp og gulbrodda.

Grænkál:

Rífið kálið niður, skolið og dressið með olíu og salti.

Nautamergur:

Mergurinn er fenginn úr leggbeinum. Skerið hann niður og létteldið við vægan hita. Kryddið með salti.

Færið sveppina og grænkálið upp á disk, setjið um það bil tvo mergbita á hvern disk og hellið soðinu yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.