Snjóblinda verður Snjóbrúður Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. desember 2010 12:52 Ragnar Jónasson rithöfundur ásamt fjölskyldu sinni. Mynd/ Valli. „
Schneebraut" er fyrirhugaður titill á nýrri bók Ragnars Jónassonar, Snjóblindu, sem gert er ráð fyrir að muni koma út í Þýskalandi á næsta ári. Bók Ragnars, sem er önnur skáldsagan sem hann gefur út, kom út í október og skömmu á eftir greindi Fréttablaðið frá því að til stæði að gefa hana út í Þýskalandi. Þýski titillinn myndi útleggjast Snjóbrúður á Íslandi. „Það þætti mér góður titill, enda hefst sagan á því að ung kona liggur blóðug í snjónum á Siglufirði, nær dauða en lífi," segir Ragnar. Snjóblinda gerist að vetrarlagi á Siglufirði og er fyrsta spennusagan sem notar þann kunna síldarbæ sem sögusvið, enda á Ragnar ættir að rekja þangað. „Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef heimsótt bæinn, en ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því - gestabók ömmu og afa - að þangað hafi ég fyrst komið þriggja mánaða gamall, og nú reyni ég að heimsækja bæinn nokkrum sinnum á ári," segir Ragnar. Ragnar hafði þýtt skáldsögur Agöthu Christie um árabil áður en hann tók til við að semja glæpasögur, en hann viðurkennir þó að glæpasöguskrif hafi blundað í honum lengi. "Ég skrifaði raunar fyrstu glæpasöguna mína árið 1988, 12 ára gamall, en veit þó ekki hvort ég á hana til einhvers staðar lengur. Hún fjallaði um leynilögreglumennina James Morgan og Thomas Rickson og gerðist í London. Ég samdi líka nokkrar framhaldssögur um þá félaga sem ég á enn til í gömlum stílabókum heima og les þær kannski aftur einn góðan veðurdag." Það er þýska risaforlagið Fischer sem á útgáfuréttinn á bókinni í Þýskalandi, en þeir hafa á sínum snærum glæpasagnahöfunda á borð við Agöthu Christie og Yrsu Sigurðardóttur. Á vefnum Sögueyjan Ísland má sjá að til stendur að bókin komi út hjá Scherz Verlag, einu undirforlaga Fischer, í október 2011, en þá verður Ísland einmitt heiðursgestur á bókamessunni í Frankfurt.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Sjá meira