Halldóra Þorvalds gaf okkur uppskrift af ljúffengu kjúklingalasagna.
„Þessi réttur er fullkominn þegar maður hittir vinina og vill vera sem minnst í eldhúsinu. Hann er ofurauðveldur og hægt að gera hann áður og klikkar aldrei," sagði Halldóra.
MEXÍKANSKT KJÚKLINGALASAGNA
3-4 kjúklingabringur
1 rauðlaukur
1 paprika
2 hvítlauksrif
ca 2 krukkur salsa sósa
ca 150 gr rjómaostur
mexíkönsk kryddblanda eða taco krydd
tortilla-kökur
rifinn ostur
Aðferð:
Bringurnar skornar í munnbitsstóra bita og steiktar á pönnu. Kryddað með kryddblöndu eða taco kryddi. Sett til hliðar. Paprika og laukur (og það grænmeti sem vill) steikt á pönnunni og hvítlauknum svo bætt útá og steiktur með í 2 mín. Stór pottur tekinn fram og salsa sósan og rjómaosturinn hitað þar til samblandað. Þá er kjúllanum og grænmetinu blandað útí.
Lasagnað er svo sett saman úr þessu jukki og tortillakökum til skiptis og endað á osti. Bakað í ofni í ca 10 mín eða þar til osturinn er girnó.
„Best finnst mér að bera þennan rétt fram með hrísgrjónum sem ég hef blandað saman við maísbaunir og ferskt kóríander. Nauðsynlegt er að hafa nachos-snakk með og salsa sósu, sýrðan rjóma og guacamole. Hversu auðvelt er þetta?" sagði Halldóra.
Vertu með okkur á Facebook.
