Innlent

Bjartsýni um fjármögnun Búðarhálsvirkjunar

Katrín Júlíusdóttir. Mynd/ Pjetur.
Katrín Júlíusdóttir. Mynd/ Pjetur.
Hluti jarðvinnu við Búðarhálsvirkjun fer í útboð strax á morgun og kveðst forstjóri Landsvirkjunar bjartsýnn á að unnt verði að bjóða út aðalverkþættina fyrir mitt ár. Fara þarf nýjar leiðir í fjármögnun sem gætu falið í sér tímabundna eignaraðild annarra fjárfesta í virkjuninni.

Með göngum í gegnum Búðarháls verður fall Tungnaár virkjað milli Hrauneyjafoss og Sultartanga en ólíkt flestum öðrum virkjunum ríkir almenn sátt um þessa. Framkvæmdir hófust fyrst fyrir átta árum þegar sprengt fyrir grunni stöðvarhúss en þeim var síðan slegið á frest.

Í stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar er þetta eitt stærsta verkefnið sem stjórnvöld sjá fyrir sér til að blása lífi í efnahagslifið og því bjuggust menn við miklum tíðindum þegar tilkynnt var að iðnaðarráðherra yrði á blaðamannafundi Landsvirkjunar enda 27 milljarða króna verk. Fyrsta skrefið var þó stigið, verk upp 6-800 milljónir, þrjú prósent af heildardæminu, verða boðin út á morgun, verk sem gætu skapað vinnu fyrir allt að fjörutíu manns í sumar.

Hvort framkvæmdastigið í landinu sé orðið svo aumt að orðatiltækið "litlu verður Vöggur feginn" eigi við þegar ráðherra telur ástæðu til að vera við kynningu á svo litlu útboði, svarar Katrín Júlíusdóttir að þarna sé verið að sýna það að ætlunin sé að halda framkvæmdum við þessa virkjun á áætlun. Ef ekki væri farið í þessar undirbúningsframkvæmdir í sumar væri mjög líklegt að verkefnið gæti frestast um heilt ár.

Sjóðir Landsvirkjunar duga í þessi litlu verk en forstjórinn Hörður Arnarson telur stutt í að það takist að fjármagna og bjóða út aðalverkþættina og segir Landsvirkjunarmenn bjartsýna um að það takist fyrir mitt ár.

Rætt er um óhefðbundna fjármögnun, sem gæti þýtt að aðrir eignist tímabundið hlut í virkjuninni. Landsvirkjun yrði þó alltaf kjölfestufjárfestir, ef sú leið yrði farin, segir Hörður, en aðrir aðilar eins og lífeyrissjóðir kæmu hugsanlega einnig að verkefninu.

Ráðherrann telur að póltísk samstaða verði um slíka leið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×