Sport

Lindsey Vonn vann fyrsta gull Bandaríkjanna í bruni kvenna

Arnar Björnsson skrifar
Lindsey Vonn og Julia Mancuso,
Lindsey Vonn og Julia Mancuso, Mynd/AP

Bandaríkjamenn unnu gull og silfur í bruni kvenna á Olympíuleikunum í Vancouver í nótt. Lindsey Vonn vann gullið og Julia Mancuso silfrið.

Þetta er í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn vinna gullið í bruni kvenna á Olympíuleikum.

Þegar 22 greinum er lokið hafa Bandaríkjamenn unnið 5 gullverðlaun og 14 verðlaun alls. Þjóðverjar, Kóreumenn og Svisslendingar hafa unnið til þrennra gullverðlauna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×