Lífið

Hefur fyrir því að rækta kroppinn

Doutzen Kroes. MYNDIR/Cover Media
Doutzen Kroes. MYNDIR/Cover Media

Á meðfylgjandi myndum má sjá Victoria's Secret fyrirsætuna Doutzen Kroes, sem dregur úr fæðu sem inniheldur kolvetni og drekkur mikið af heilsudjús áður en hún situr fyrir eða gengur léttklædd um sýningarpallana.

Doutzen viðurkennir að hún þarf að hafa fyrir því að vera í góðu líkamlegu formi en hún stundar reglulega líkamsrækt og passar upp á mataræðið.

„Þegar ég byrjaði sem fyrirsæta var ég beðin um að létta mig. Ég gerði það ekki heldur hætti að neyta sætinda. Ég mæli ekki með því að konur fái þyngdina á heilann heldur hugsi vel um sig," sagði Doutzen sem var talin allt of horuð þegar hún byrjaði í módelbransanum.

Hún heldur því fram að ungar stúlkur sem eru allt of grannar geisli ekki af fegurð.

„Það er mjög mikilvægt að hugsa vel um sjálfa sig en ég er alls ekki að senda út þau skilaboð að stúlkur eigi að vera horaðar. Þegar þær hætta að borða hætta þær að geisla. Það er mikilvægt að líða vel, hreyfa sig reglulega og vera meðvituð um hvað er hollt og hvað ekki."

Stjörnumerkjapælingar, spár og spjall á Lífinu á Facebook.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.