Lífið

Nei, Dorrit! - forsetahjónin í Iðnó

Ólafur og Dorrit verða leikin af Snorra Ásmundssyni og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur.
Ólafur og Dorrit verða leikin af Snorra Ásmundssyni og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur.
Næstkomandi mánudag taka nokkrir af fremstu listamönnum þjóðarinnar höndum saman og sýna í fyrsta og eina skiptið afar raunsætt samtímaverk sem ber heitið Nei, Dorrit! Það er byggt á þekktu viðtali við íslensku forsetahjónin, sem birtist í breska tímaritinu Condé Nast í fyrra.

Í tilkynningu frá leikhópnum segir: "Um þessar mundir birtast daglega blaðagreinar sem ljóstra upp um veruleika sem lesendur hefðu fyrir tveimur árum síðan álitið fáránleika. Þetta viðtal, sem birtist í árdaga hrunsins, bregður einstöku ljósi á fínleg skil hinna tveggja -leika með ólíku forskeytunum. Stefna Mánudagsleikhússins er að vinna leikrit sín einungis upp úr gagnabönkum dagblaða, viðtölum við samtímafólk hérlendis og erlendis, svo persónur verkanna standi leikhúsgestum ljóslifandi fyrir hugskotssjónum í sínum jarðbundna fáránleika.

Fyrr um daginn verður Rannsóknarskýrslan sérstaklega kynnt fyrir fjölmiðlafólki í Iðnó. Þjóðinni gefst því færi á að mæta í sama hús síðar um kvöldið, strax á eftir Kastljósi, til að sjá þennan stutta en þó harmræna gleðileik og blanda geði við aðra, áhugasama að rabba um skýrsluna."

Húsið opnar klukkan 20 og sýningin hefst klukkan 20.30. Verkið er aðeins 25 mínútna langt og er miðaverð þúsund krónur við innganginn. Rannsóknarskýrslan mun liggja til sýnis á barnum.

Leikarar eru Snorri Ásmundsson (Ólafur Ragnar Grímsson, forseti smáþjóðar), Ásdís Sif Gunnarsdóttir (Dorrit Moussaieff), Davíð Þór Jónsson (Joshua Hammer blaðamaður) og Kría Brekkan (hundur forsetahjónanna). Leikstjóri er Auður Jónsdóttir rithöfundur, höfundur hljóðmyndar Davíð Þór Jónsson og höfundur leikgerðar Þórarinn Leifsson.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.