Golf

Tiger í þriðja sæti - Westwood efstur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger í eldlínunni í dag.
Tiger í eldlínunni í dag.

Þriðja keppnisdegi af fjórum á Masters-mótinu er lokið. Englendingurinn Lee Westwood er efstur fyrir lokadaginn en Tiger Woods er í þriðja sæti og hefur ekki sagt sitt síðasta orð.

Tiger átti frekar skrautlegan dag í dag. Hann náði 7 fuglum, 6 pörum en var með 5 skolla. Kom því í hús á 70 höggum annan daginn í röð eða 2 höggum undir pari.

Tiger því samtals á 8 höggum undir pari rétt eins og KJ Choi en þeir hafa verið eins og síamstvíburar allt mótið og nánast haldist í hendur frá fyrsta degi. Spilað í sama holli frá upphafi og munu klára mótið saman.

Westwood er 4 höggum á undan Tiger fyrir lokadaginn eða á 12 höggum undir pari.  Westwood spilaði enn og aftur frábærlega í dag og kom í hús á 4 höggum undir pari.

Hann er einn efstur en aðeins höggi á eftir honum er Phil Mickelson sem lék enn betur í dag og lék á 5 höggum undir pari í dag og því samtals á 11 höggum undir pari.

Gamla brýnið Fred Couples leiddi eftir fyrsta daginn en missti dampinn í gær. Hann kom þó aftur upp sterkur í dag og lék á 4 höggum undir pari og er því aðeins höggi á eftir Tiger og Choi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×