Lífið

Irina er á höttunum eftir athygli

Kjartan Már, góðvinur ljósmyndarans Vincent Peters sem tók myndirnar af Irinu, segir fyrirsætuna vera á höttunum eftir athygli. Efnislítill þvengur sem fyrirsætan klæddist var fjarlægður og fyrirsætan hyggst fara í mál við tímaritið GQ af þeim sökum.
Kjartan Már, góðvinur ljósmyndarans Vincent Peters sem tók myndirnar af Irinu, segir fyrirsætuna vera á höttunum eftir athygli. Efnislítill þvengur sem fyrirsætan klæddist var fjarlægður og fyrirsætan hyggst fara í mál við tímaritið GQ af þeim sökum.

„Mín tilfinning er sú að hún sé bara að sækjast eftir athygli," segir Kjartan Már Magnússon ljósmyndari.

Eitt heitasta málið í tískuheiminum um þessar mundir er deila spænsku útgáfunnar af karlatímaritinu GQ og fyrirsætunnur Irinu Shayk sem er unnusta portúgalska knattspyrnukappans Cristiano Ronaldo. Shayk hyggst leita réttar síns vegna nektarmynda sem birtust í blaðinu en fyrirsætan heldur því fram að hún hafi alls ekki verið nakin heldur hafi fötin verið fjarlægð með Photoshop.

Ljósmyndarinn sem tók myndirnar heitir Vincent Peters og er feykilega virtur í sínu fagi. Hann og Kjartan eru góðir vinir, hafa unnið saman og halda góðu sambandi.

Vincent hefur meðal annars sent Kjartani myndirnar sem málið snýst um og Fréttablaðið hefur fengið að sjá þær en hefur ekki leyfi til að birta þær enda væri það brot á höfundarrétti.

Á óunninni myndinni sést húðlitaður strengur um mittið á fyrirsætunni. Þegar forritið hefur verið notað er strengurinn á bak og burt. Kjartan Már bendir á að Irina sé Victoria's Secret fyrirsæta og hún vinni við að vera á nærbuxunum.

„Myndirnar eru smekklegar að mínu mati og þetta er ekki Vincent að kenna, hann gerði þetta bara í góðri trú."

Ljósmyndarinn segist sannfærður um að Irina sé að leita eftir athygli og hún hafi fengið hana.

„Þetta er ekki drottningin og hún hefði aldrei fengið þessa athygli ef ekki hefði verið vegna þessa máls."- fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.