Snýst um að halda lífi í Kvosinni 18. júní 2010 09:30 Endless Dark kemur fram á tónlistarhátíðinni Músmos í Kvosinni í Mosfellsbæ á morgun. „
Þetta snýst um að halda lífi í Kvosinni og gefa ungum og upprennandi tónlistarmönnum tækifæri til að koma fram,“ segir Teitur Björgvinsson, einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Músmos. Músmos verður haldin í þriðja skipti í Kvosinni í Mosfellsbæ klukkan 15 á morgun. Fjölmargar hljómsveitir koma fram og flestar eiga þær sameiginlegt að tengjast Mosfellsbæ á einn eða annan hátt, en þessar hljómsveitir eru: Mystur, Snjólugt, Cancer City, St. Peter the Leader, Endless Dark, Of Monsters and Men, For a Minor Reflection og söngkonunar María Ólafsdóttir og Hreindís Ylfa. „Eina hljómsveitin sem hefur ekki tengingu við Mosfellsbæ er Endless Dark,“ segir Teitur. „Okkur langaði að hafa þekktari og stærri hljómsveit með til að þessar ungu og upprennandi hljómsveitir fái tækifæri til að spila með þeim. Svo að þetta sé meiri spenna fyrir ungu hljómsveitirnar. Hljómsveitirnar hafa iðulega haft einhverja tengingu – þó að það sé ekki algjör skylda. Við höfum gaman af því að styðja við unga tónlistarmenn í Mosfellsbæ.“ Teitur hefur sjálfur komið fram í Kvosinni. Hann segir svæðið fullkomið fyrir tónleikahald og Kvosin sé uppáhaldstónleikasvæði hljómsveitarinnar We Made God, en meðlimir hennar hafa mært Kvosina í viðtölum við erlenda fjölmiðla. En er ekki hátíðin opin fólki frá öllum landsvæðum? „Algjörlega. Við hvetjum sem flesta til að koma,“ segir Teitur. - afb
Mest lesið Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Fleiri fréttir 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Sjá meira