Lífið

Sátt við sambandsslit

góð Vanessa Hudgens hætti með kærasta sínum stuttu fyrir afmæli sitt.
góð Vanessa Hudgens hætti með kærasta sínum stuttu fyrir afmæli sitt.

Disney-stjörnurnar Zac Efron og Vanessa Hudgens slitu nýverið sambandi sínu en þau höfðu þá verið saman í fjögur ár. Sambandsslitin áttu sér stað stuttu fyrir afmælisdag Hudgens, sem virtist þó skemmta sér vel í faðmi vina og vandamanna á skemmtistað í Las Vegas.

„Við höfum það fínt," sagði leikkonan þegar hún var spurð út í sambandsslitin og samkvæmt tímaritinu People dansaði leikkonan langt fram á nótt með vinum sínum á 22 ára afmælisdaginn. „Þetta er búið að vera gott ár. Í fyrra vann ég mjög mikið en í ár hef ég reynt að slappa svolítið af og njóta þess að vera til."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.