Hjaltalín styrkt til að kynna landið 29. júní 2010 12:30 Hjaltalín fékk styrk frá Inspired by Iceland-átakinu til að kynna landið og sveitina í leiðinni. Fréttablaðið/gva „
Við vildum sýna að hægt er að nota íslenska tónlist á markvissan hátt við að kynna land og þjóð," segir Steinþór Helgi Arnsteinsson umboðsmaður hljómsveitarinnar Hjaltalín. Hjaltalín fékk styrk til að bjóða 14 erlendum blaðamönnum til landsins og sjá tónleika hljómsveitarinnar og Sinfóníu Íslands fyrr í þessum mánuði. Afraksturinn má svo lesa í greinum og dómum um tónleikana í mörgum af fremstu dagblöðum og tímaritum heims. Meðal annars kynnir blaðamaður danska dagblaðsins Politiken hljómsveitina sem bjargvætt íslenska orðsporsins og að þeir muni spila landið út úr kreppunni. Grein hans má lesa hér. „Við bárum hugmyndina undir Útflutningsráð sem síðan hafði samband við Inspired By Iceland sem styrkti okkur í þessu verkefni," segir Steinþór. „Hljómsveitin er kynna plötuna Terminal í Evrópu og við töldum þetta vera góða leið til að koma okkur á framfæri; að leyfa fjölmiðlafólki að sjá Hjaltalín á heimavelli." Steinþór bætir við að innflutningur blaðamannanna hafi verið hluti af þeirra eigin kynningarátaki. „Við lögðum líka pening í þetta á móti styrknum frá Inspired by Iceland. Okkur fannst við vera að slá tvær flugur í einu höggi. Kynna landið og hljómsveitina." Anna Hildur Hildibrandsdóttir framkvæmdastjóri Útón, útflutningsráðs íslenskrar tónlistar segir að styrkur sem þessi sé ekki algengur. „Við töldum að í þessu verkefni færu saman hagsmunir beggja, sveitarinnar og kynningarátaksins," segir hún. „Það er ekki þannig að allar hljómsveitir geti sótt um styrki af þessu tagi. Hjaltalín fékk hann vegna þess að hljómsveitin er með útgáfuplan í Evrópu og fyrirhugað tónleikaferðalag." - áp
Mest lesið Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Lífið „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Fleiri fréttir 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Sjá meira