Handbolti

Handboltatímabilið af stað á Ásvöllum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik Hauka og Vals í fyrravetur.
Úr leik Hauka og Vals í fyrravetur.
Handboltatímabilið fer af stað í kvöld þegar Íslands- og bikarmeistarar Hauka og Valur mætast í Meistarakeppni HSÍ.

Valur tapaði fyrir Haukum í bæði bikaúrslitaleiknum í fyrra sem og í úrslitaeinvíginu um Íslandmeistaratitilinn sem fór alla leið í oddaleik.

Leikurinn fer fram á heimavelli Íslandsmeistaranna á Ásvöllum og hefst klukkan 19.30.

Valur vann Hauka 22-21 í sama leik í fyrra en árið á undan unnu Haukar 25-21 sigur á Val í þessum fyrsta opinbera leik tímabilsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×