Lífið

Amy og Blake aftur upp að altarinu

Amy og Blake ætla að gera aðra tilraun.
Amy og Blake ætla að gera aðra tilraun.

Amy Winehouse er að plana að giftast gamla kærastanum Blake Fielder-Civil á ný í Las Vegas. Turtildúfurnar voru gefnar saman í Miami árið 2007 en stuttu seinna var Blake handtekinn fyrir líkamsárás og dæmdur í 27 mánaða fangelsi.

Á síðasta ári skildu hjónin þegar upp komst um framhjáhald söngspírunnar en eftir að Blake losnaði úr fangelsinu og fór í meðferð endurnýjaði parið kynnin og í þetta sinn eru þau fullviss um að dæmið gangi upp.

Að sögn heimildarmanns The Sun úr innsta hring Amy vill hún giftast í Vegas í þetta skiptið því að hennar mati gæti það verið slæmur fyrirboði að endurtaka leikinn í Miami.

Amy var einnig að splæsa í 2,6 milljóna punda íbúð í Camden hverfinu í London og ætlar Blake að flytja inn til hennar, um leið og hann losnar úr meðferð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.