Lífið

Lady Gaga söluhæst

The Fame Monster með söngkonunni Lady Gaga er söluhæsta plata ársins 2010. Platan, sem er stækkuð útgáfa af frumburði hennar The Fame, seldist í tæpum sex milljónum eintaka víðs vegar um heiminn.

Rapparinn Eminem átti næstsöluhæstu plötuna, Recovery, sem seldist í 5,7 milljónum eintaka. Lady Gaga var ánægð með árangurinn á Twitter-síðu sinni.

„Ég er mjög spennt fyrir framtíðinni. Ef þú trúir á sjálfan þig og leggur hart að þér munu draumar þínir rætast," skrifaði hún. Næsta plata Gaga, Born This Way, er væntanleg á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.