Handbolti

Ísland í ágætum riðli í lokakeppni EM

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Geir Guðmundsson, Akureyringur, er í liðinu.
Geir Guðmundsson, Akureyringur, er í liðinu. Fréttablaðið/Daníel

Dregið var í riðla í lokakeppni Evrópumóts U18 ára liða sem fer fram í Svartfjallalandi í ágúst. Ísland er í riðli með Slóveníu, Sviss og Tékklandi.

Ísland komst áfram í síðustu viku eftir undankeppnina í Belgíu.

Íslenska liðið var þá í riðli með Belgum, Norðmönnum og Úkraínu og stóð sig vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×