Hjartað á Íslandi 21. ágúst 2010 12:00 Stina August ásamt hljómsveitinni Nista Stína syngur á Jazzhátíð í Reykjavík á mánudagskvöld.
Söngkonan Stína August, sem er búsett í Montreal í Kanada, heldur tónleika á Jazzhátíð í Reykjavík á mánudaginn á staðnum Venue við Tryggvagötu. Með Stínu spila valinkunnir einstaklingar, eða þeir Björn Thoroddsen, Sigurður Flosason, Einar Scheving og Tómas Einarsson. Spiluð verða lög af væntanlegri sólóplötu hennar Concrete World en stefnt er að því að platan verði komin út fyrir tónleikana. Hún hefur verið í vinnslu sl. tvö ár og samanstendur af tólf lögum Jóhanns G. Jóhannssonar. Textarnir eru á ensku og hefur Stína samið nokkra þeirra. „Hann samdi lög sem maður hefur alist upp við og svo þekkir hann líka pabba minn. Hann var að vinna með þeim í Óðmönnum,“ segir Stína um Jóhann G og tilurð plötunnar. Hún er mjög spennt fyrir tónleikunum og hljóðfæraleikurunum sem verða með henni. „Hérna eru manns rætur og hjartað er náttúrulega hér að miklu leyti,“ segir hún. „Maður er með súperstjörnuband með sér. Þeir voru allir rosahressir og til í hvað sem var.“ Stína mun jafnframt koma fram á menningarnótt, meðal annars í bakgarði verslunarinnar Nikita. Hún kom fram á tónleikum í gærkvöldi á Nasa með hljómsveit sinni Nista, sem spilar elektrórokk með poppívafi. Stína heitir fullu nafni Kristín Birgitta Ágústsdóttir. Hún nam verkfræði við Háskóla Íslands og hefur frá barnsaldri verið við tónlistarnám og m.a. lagt stund á klassískan söng við Söngskóla Reykjavíkur. Þá var hún við tónlistarnám við Vocaltech, Concordia University í London. Eftir að hún fluttist búferlum til Kanada kom hún fram í söngleikjum eins og West Side Story og Chorus Line ásamt því að nema raddþjálfun hjá Silviu Peron. Ásamt því að vera meðlimur Nistu gerir hún það gott með AXXE og syngur jazz á eigin vegum.
Mest lesið Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Lífið Taka ákvörðun á hverjum degi að elska hvort annað Lífið Tólf og þrettán ára fatahönnuðir á Akureyri slá í gegn Lífið Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Lífið „Gæti skrifað bókaseríu um vandræðileg stefnumót“ Makamál Viðar Örn og Sylvía Rós eiga von á barni Lífið Laufey Lín skartaði íslenska fánanum á Coachella Lífið Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Menning Ósamþykkt kjallaraíbúð á rúmar 44 milljónir Lífið Hélt að Sálin hafi hvatt fólk til að horfa til himins með höfuðið hátt Lífið Fleiri fréttir Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Tólf og þrettán ára fatahönnuðir á Akureyri slá í gegn Taka ákvörðun á hverjum degi að elska hvort annað Ósamþykkt kjallaraíbúð á rúmar 44 milljónir Hélt að Sálin hafi hvatt fólk til að horfa til himins með höfuðið hátt Hátíð sem er skipulögð í kringum yngstu kynslóðina Laufey Lín skartaði íslenska fánanum á Coachella Viðar Örn og Sylvía Rós eiga von á barni Heillandi hús við Laugalæk úr smiðju Kjartans Sveinssonar Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Hafa aldrei rifist Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife Stóri plokkdagurinn haldinn á sunnudaginn Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Litla hryllingsbúðin kveður á Akureyri Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Krakkatían: Páskar, söngkeppnir og afmælisbörn Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Trommari New Pornographers ákærður fyrir vörslu barnaníðsefnis Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Veikindafríi Páls Óskars lokið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Sunneva og Benedikt trúlofuð Tónlistarmyndband Addison Rae tekið upp á Íslandi Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“