Lífið

Eiginmaður Brittany Murphy látinn - fimm mánuðum á eftir henni

Simon Monjack og Brittany Murphy sjást hér á flugvellinum í L.A. í haust.
Simon Monjack og Brittany Murphy sjást hér á flugvellinum í L.A. í haust.
Eiginmaður leikkonunnar Brittany Murphy lést í gær, aðeins fimm mánuðum eftir að hún lést.

Simon Monjack var breskur handritshöfundur sem giftist Murphy árið 2007. Hann fannst látinn á heimili sínu í Los Angeles í gærkvöldi. Sagði lögreglan að enn sem komið er væri talið að hann hefði látist af eðlilegum orsökum en verið væri að rannsaka vettvanginn betur.

„Heimur minn hrundi í gær," sagði Monjack þegar eiginkona hans lést í vetur. Dánarorsök hennar var lungnabólga en eiturlyf voru einnig talin hafa spilað inn í. Hún var 32 ára gömul og hafði leikið í vinsælum myndum á borð við Clueless og 8 Mile.

Monjack skrifaði meðal annars söguna fyrir myndina Factory Girl sem var um Andy Warhol. Í henni léku Guy Pearce og Sienna Miller.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.