Viðskipti erlent

Spákaupmenn ganga af göflunum í írsku skuldabraski

Nýjar tölur frá greiningarfyrirtækinu Data Explorers benda til að spákaupmenn hafi gengið af göflunum í írsku skuldabraski í sumar og það sem af er haustinu.

Magn írskra ríkisskuldabréfa sem fengin eru að láni af vogunarsjóðum og fjárfestum hefur tvöfaldast frá því í lok júlí s.l. Í frétt um málið í Jyllands Posten er haft eftir Will Duff Gordon greinenda hjá Data Explorers að þessi lán séu að mestu tilkomin vegna skortstöðutöku í bréfunum.

Fram kemur að þessar skortstöður auki einar og sér þann þrýsting sem fyrir er á írskum ríkisskuldabréfum vegna bágrar efnahagsstöðu Írlands þar sem þær auka magnið af söluskipunum sem fyrir eru í viðskiptakerfum með þessi bréf.

Fyrir ríkisskuldabréf fer gengi þeirra og vextir í gagnstæðar áttir. Þegar gengið fellur hækka vextirnir. Á síðustu vikum hafa vextir á írsku bréfin hækkað upp í rjáfur og þar með hafa spákaupmenn með skortstöður í þeim makað krókinn. Vextir á bréfin eru nú vel yfir 8% en það er 5 prósentustigum yfir hinum tóngefandi þýsku ríkisskuldabréfum í Evrópu.

Samhliða þessu sýna tölur Data Explorers að langtímastöður fjárfesta í írskum ríkisskuldabréfum hafa minnkað um 30% frá því í apríl s.l. Þessi hópur fjárfesta, að mestu lífeyrissjóðir, tryggingarfélög og fjárfestingarsjóðir á vegum hins opinbera, hefur minnkað stöðu sína úr 10 milljörðum evra í apríl s.l. niður í 6,9 milljarða í þessum mánuði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×