Handbolti

Úrslitaeinvígi kvenna hefst í dag

Elvar Geir Magnússon skrifar

Valur og Fram mætast í dag í Vodafone-höllinni í fyrsta leik sínum í einvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna. Þrjá sigra þarf til að verða meistari.

Leikurinn í dag hefst klukkan 16. Framkonur urðu síðast Íslandsmeistarar 1990 en Valskonur 1983 og biðin hjá þessum Reykjavíkurfélögum því verið löng.

Á þriðjudagskvöld fer önnur viðureign liðanna fram í Safamýrinni og rimman færist svo aftur á Hlíðarenda á föstudagskvöld þar sem þriðji leikurinn verður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×