Lífið

Óánægð með bótoxið

kim kardashian Var óánægð með botox-aðgerðina sína.
kim kardashian Var óánægð með botox-aðgerðina sína.

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur útskýrt hvers vegna hún fór í botox-aðgerð í sjónvarpsþætti sínum. Hún hafði áður haldið því fram að konur á hennar aldri þyrftu ekki á slíku að halda.

„Ég var ekki ánægð með útkomuna," sagði hún.

„En ég verð þrítug á þessu ári. Ég var stressuð út af því og þetta langaði mig að prófa einhvern tímann. Ég ákvað að sýna hvað ég myndi þurfa að ganga í gegnum. Niðurstaðan var samt að ég var ekki ánægð með þetta og ég held að þetta hafi verið röng ákvörðun hjá mér. Fólk þarf í rauninni ekki að gera svona lagað."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.