Lífið

Ögruðu með nýju lagi

Prófuðu nýtt efni á tónleikum í vikunni þrátt fyrir að hafa ekki leyfi.
Prófuðu nýtt efni á tónleikum í vikunni þrátt fyrir að hafa ekki leyfi.

Hljómsveitin Kings of Leon ögraði útgáfufyrirtæki sínu allverulega á tónleikum nú í vikunni.

Rokkararnir notuðu tækifærið þegar þeir spiluðu fyrir 60.000 æsta aðdáendur til að prufa nýtt efni.

„Síðan við hittum ykkur síðast höfum við eytt tímanum í að búa til nýja plötu fyrir ykkur. Við lögðum mikla vinnu í hana," sagði söngvarinn, Caleb Follo­will, við aðdáendur sína. „Ég er ekki viss um að þeir vilji að við spilum nýju lögin fyrir ykkur en til fjandans með það - við ætlum að gera það!"








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.