Lífið

Manson og Wood hætt saman

Marilyn Manson Söngvarinn stórundarlegi hefur nú slitið trúlofun sinni við leikkonuna Evan Rachel Wood
Marilyn Manson Söngvarinn stórundarlegi hefur nú slitið trúlofun sinni við leikkonuna Evan Rachel Wood

Hið stórundalega par, söngvarinn Marilyn Manson og leikkonan Evan Rachel Wood hafa nú enn einu sinni slitið sambandi sínu og í þetta sinn einnig trúlofun sinni samkvæmt heimildum vestanhafs.

Parið, sem hefur verið í haltu mér - slepptu mér sambandi síðastliðin ár byrjuðu að stinga saman nefjum árið 2006, stuttu eftir að söngvarinn skildi við hina kynþokkafullu Burlesque-stjörnu, Ditu Von Teese. Þau hættu síðan saman árið 2008 en tóku saman í stuttan tíma aftur árið 2009. Það var síðan í janúar á þessu ári sem þau trúlofuðu sig í laumi en hafa nú slitið þeirri trúlofun átta mánuðum síðar.

Manson sást úti á lífinu í Hollywood án Wood nú um helgina og segja heimildir að það hafi verið tilraun vina hans til að hressa hann við eftir sambandsslitin.

„Þau voru að slíta trúlofuninni og hann þurfti á djammi með vinum sínum að halda," sagði heimildarmaður.

Þrátt fyrir slitin er þetta ekki í síðasta sinn sem parið sér hvort annað því þau eru bæði með hlutverk í splattermyndinni Splatter Sisters. Það verður því áhugavert að sjá hvort þau muni haldast í sundur í þetta sinn eða hvort sagan muni endurtaka sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.