Bíó og sjónvarp

Fitzgerald á hvíta tjaldið

Matt Damon og Keira Knightley yrðu án efa flott par á hvíta tjaldinu.
Matt Damon og Keira Knightley yrðu án efa flott par á hvíta tjaldinu.
F. Scott Fitzgerald er einn þeirra bandarísku rithöfunda sem verða alltaf að hálfgerðri tískubylgju í Hollywood. Kvikmyndir sem byggja á verkum hans koma í gusum en svo gerist kannski ekki neitt í þeim efnum svo árum og áratugum skiptir.

Nú virðist kvikmynd Davids Fincher um undarlegt líf Benjamins Button hafa kveikt áhugann á verkum rithöfundarins því í bígerð er kvikmynd sem byggir á smásögu hans Tender Is the Night. Meðal þeirra leikara sem hafa verið orðaðir við hlutverk í myndinni eru Matt Damon og Keira Knightley en enginn leikstjóri er þó sestur í bílstjórasætið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×