Handbolti

Hanna Guðrún best í N1-deild kvenna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hanna Guðrún Stefánsdóttir úr Haukum var í kvöld valinn besti leikmaður N1-deildar kvenna á lokahófi HSÍ.

Hanna var einnig markahæst í deildinni

Anna Úrsula Guðmundsdóttir úr Val var valinn besti varnarmaðurinn og Karen Knútsdóttir úr Fram var valinn besti sóknarmaðurinn.

Berlind Íris Hansdóttir úr Val var valinn besti markvörður deildarinnar og Sunna Jónsdóttir í Fylki var valinn efnilegust.

Besti þjálfarinn var síðan Einar Jónsson, þjálfari Fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×