Lífið

Hætt við tónleikaferð vegna brotinnar höfuðkúpu

Rokksveitin Endless Dark spilaði á Sonisphere á dögunum við góðar undirtektir.fréttablaðið/valli
Rokksveitin Endless Dark spilaði á Sonisphere á dögunum við góðar undirtektir.fréttablaðið/valli
Ekkert varð af stuttri tónleikaferð rokksveitarinnar Endless Dark með bandarísku sveitinni Madina Lake um Bretland. Ástæðan er veikindi bassaleikara Madina Lake sem höfuðkúpubrotnaði eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás.

„Þeir vilja ekki hafa önnur bönd með sér út af bassaleikaranum,“ segir gítarleikarinn Atli Sigursveinsson. Þetta voru vonbrigði fyrir Endless Dark því Madina Lake nýtur töluverðra vinsælda í Bretlandi og tónleikarnir hefðu verið góð kynning fyrir íslensku rokkarana. Endless Dark átti til að mynda að spila á hinum þekkta tónleikastað Barfly í London á miðvikudagskvöld en þeir duttu upp fyrir.

Þegar ekkert varð af Madina Lake-ævintýrinu ákváðu Endless Dark að dvelja í Manchester um hríð við lagasmíðar og æfingar. Einnig spiluðu þeir á litlum tónleikum í borginni.

Félagarnir frá Vesturlandi fóru þó enga fýluferð til Bretlands því þeir spiluðu á tónlistarhátíðinni Sonisphere 31. júlí. Þar komu einnig fram sveitir á borð við Iron Maiden, Rammstein, Mötley Crue og Placebo, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá.

Að sögn Atla gekk spilamennskan mjög vel, auk þess sem hátíðin sjálf var mikil upplifun. „Það var „crazy“ að geta verið með passa þar sem maður komst inn á öll svæði og gat hitt öll böndin. Það var mjög „kúl“ að geta spilað meðal svona stórra banda,“ segir hann. Atli kynntist stjörnunum í hinum böndunum lítillega og hafði gaman af. „Ég talaði smá við Placebo-söngvarann og við gítarleikarann í Rammstein. Þeir eru allt öðruvísi þegar maður sér þá í eigin persónu.“ Hann segir einnig eftirminnilegt þegar Vince Neil, söngvarinn í Mötley Crue, mætti á VIP-svæðið í litlum golfbíl ásamt tveim föngulegum gellum. Á eftir þeim ók síðan annar golfbíll með tveimur gellum til viðbótar.

Annað tónleikaferðalag til Bretlands er fyrirhugað síðar á þessu ári með aðstoð enska fyrirtækisins X-Ray Touring sem Endless Dark samdi við fyrir skömmu. Fyrsta plata sveitarinnar er einnig væntanleg síðar á árinu.

Endless Dark, sem spilar post-harðkjarnarokk eða screamo, lenti í öðru sæti í alþjóðlegu hæfileikakeppninni Global Battle of the Bands fyrr á árinu og þykir með efnilegustu rokksveitum landsins um þessar mundir og þótt víðar væri leitað.

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.