Bíó og sjónvarp

Logi á Nordisk Panorma

Sigtryggur Magnason skrifar
Logi Hilmarsson kvikmyndagerðarmaður.
Logi Hilmarsson kvikmyndagerðarmaður.
„Þetta er fyrsta stuttmyndin sem mér fannst nógu góð til að ég þyrði að senda hana frá mér," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Logi Hilmarsson. Stuttmynd hans, Þyngdarafl, keppir í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama sem fram fer í Bergen í Noregi dagana 24. til 29. september.

Þyngdarafl var frumsýnd á stuttmyndahátíðinni Northern Wave á Grundarfirði í vetur og voru móttökurnar svo góðar að Logi ákvað að senda myndina áfram á Nordisk Panorama. „Ég varð svolítið hissa yfir því hvað hún fékk góðar móttökur. Ég var búinn að liggja svo lengi yfir henni að ég var kominn með algjört ógeð, en þegar ég horfði á hana í bíósalnum og sá viðbrögð fólks áttaði ég mig á því að myndin var ekki alslæm," segir Logi. Hann stundaði nám við kvikmyndaskóla í París auk þess sem hann hefur starfað mikið innan kvikmyndabransans hér á landi undanfarin ár.

Að sögn Loga fjallar Þyngdarafl um ást, vináttu og trú og áhrif trúarinnar á samband manna. Leikararnir Magnea Valdimarsdóttir, Magnús Guðmundsson og Damon Younger fara með hlutverk í myndinni.

Inntur eftir því hvaða þýðingu þetta hafi á feril hans segir Logi þetta fyrst og fremst mikið hrós. „Þetta er auðvitað mikil viðurkenning fyrir mig sem kvikmyndagerðarmann því það eru fáar myndir sem komast að á hátíðinni og vonandi opnar þetta nýjar dyr í framtíðinni," segir hann og bætir við hlæjandi: „Og nú þarf ég ekki lengur að skammast mín þegar ég segist vera kvikmyndagerðarmaður."

Sjónvarpið hefur þegar keypt sýningarréttinn að myndinni og því ættu landsmenn að geta barið hana augum innan tíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×