Lífið

Auglýsingalög innblásin af Sigur Rós

Lög Sigur Rósar eru vinsæl en margar auglýsingastofur hika ekki við að notfæra sér kunnugleg stef úr þeim, breyta þeim lítillega og nota í herferðir sínar.
Fréttablaðið/GVA
Lög Sigur Rósar eru vinsæl en margar auglýsingastofur hika ekki við að notfæra sér kunnugleg stef úr þeim, breyta þeim lítillega og nota í herferðir sínar. Fréttablaðið/GVA

„Við fáum voðalega margar beiðnir, ég hef enga tölu á því hversu margar því þetta fer allt í gegnum umboðsmanninn okkar," segir Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar.

Um helgina birtist stutt grein á heimasíðu sveitarinnar þar sem það var áréttað að hljómsveitin hefði ekki selt nein lög í auglýsingar sem miðuðu að því að selja eitthvað.

„Þeir hafa gefið leyfi fyrir kvikmyndir, sjónvarp og vegna góðgerðarmála en ekki til markaðsmála," segir á heimasíðunni.

Georg segir ástæðuna einfaldlega vera þá að öðru hverju spretti upp á netinu umræður um hvort Sigur Rós hafi gefið leyfi sitt fyrir að nota lög í hinum og þessum auglýsingum einhverra stórfyrirtækja. Á vefsíðu Sigur Rósar er meðal annars notað dæmi um fyrirtæki sem var að gera auglýsingu fyrir Audi-umboðið og vildi fá að nota lag frá sveitinni. Því var hafnað. Þegar auglýsingin var frumsýnd fór strax af stað umræða um það hvort lag eftir Sigur Rós væri notað í nýrri auglýsingaherferð þýska bílarisans.

Kunnuglegum stefum úr frægum Sigur Rósar-lögum hefur þá verið breytt nægilega mikið til að ekki sé hægt að kæra það.

Georg segir þá lítið geta gert í þessum málum, nema kannski bara hlæja að þeim.

„Við höfum einu sinni eða tvisvar orðið mjög móðgaðir og íhugað málaferli. Þá fengum við lögfróða menn til að meta hvort lagið væri stolið eða ekki en þeir komust að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki, nægilega miklu hefði verið breytt."- fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.