Lífið

Fer á puttanum til Akureyrar

Sigga göngugarpur Lagði af stað á puttanum til Akureyrar í gær og hefur leyfi til að sitja 50 kílómetra í senn í hverjum bíl.
Sigga göngugarpur Lagði af stað á puttanum til Akureyrar í gær og hefur leyfi til að sitja 50 kílómetra í senn í hverjum bíl.
„Ég get nú ekki sagt að ég sé mikill göngugarpur, en ég er frekar mikill fíkill á að gera eitthvað skemmtilegt. Helgin var alveg opin hjá mér og ég var nokkuð til í allt þannig að þetta var alveg tilvalið," segir Sigríður Garðarsdóttir.

Síðustu daga hefur útvarpsstöðin FM 957 leitað að einstaklingi sem er tilbúinn að leggja það á sig að fara fótgangandi til Akureyrar á tónlistarhátíðina „Þriggja daga vakt" um verslunarmannahelgina. Fjöldinn allur af ævintýragjörnum Íslendingum sendu tölvupóst, og eftir litla keppni á milli þriggja aðila bar Sigga sigur úr býtum. Sigga lagði af stað norður til Akureyrar í hádeginu í gær fótgangandi frá Reykjavík til Akureyrar. Reglurnar eru þær að Sigga má húkka sér far með eins mörgum bílum og hún vill, en má þó ekki sitja lengri vegalengd en 50 kílómetra í einu í hverjum bíl. Hún fékk síma í verðlaun og er fylgst með henni í gegnum GPS-staðsetningarkerfið auk þess sem hún setur inn stöðuuppfærslur á Facebook-síðu útvarpsstöðvarinnar.

„Ég er búin að taka mig til og er nú að redda bílnum mínum svo hann komist norður til mín. Svo er ég bara nokkuð góð í að leggja í hann," segir Sigga. „Ég held þetta taki um sex til sjö klukkutíma en það fer alveg eftir því hvað fólk er viljugt til að taka mig upp í."

Sigga segist ekki hafa undirbúið sitt neitt sérstaklega fyrir ferðina heldur hafi átt góða úlpu og skó inni í skáp sem ætti að duga þar sem veðrið er mjög gott. „Ég hef engar áhyggjur á því að fá ekki far. Það hlýtur einhver að vilja taka mig upp í, ef ekki þá hafa vinir mínir boðist til að bjarga mér. Það er gott að eiga góða vini," segir Sigga spennt fyrir ævintýrinu. - ls






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.