Lífið

Kendra með marga í bólinu í kynlífsmyndbandinu

Kendra ku hafa komið fram í nokkrum kynlífsmyndböndum á sínum yngri árum.
Kendra ku hafa komið fram í nokkrum kynlífsmyndböndum á sínum yngri árum.
Enn berast fréttir af kynlífsmyndböndum sjónvarpsstjörnunnar Kendru Wilkinson. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að klámframleiðandinn Vivid ætlar að gefa út eitt myndbandanna í enda maí og að fleiri en eitt séu til. Þá hefur komið fram að Kendra reyndi sjálf að selja myndböndin árið 2008, þegar hún var byrjuð með Hank Baskett, núverandi eiginmanni sínum.

Nú kemur í ljós að fjölmargir bólfélagar eru með Kendru í myndböndunum sem hún reyndi sjálf að selja og var meira að segja búin að stofna fyrirtæki til að sjá um söluna.

Enn heyrist ekkert frá Kendru um málið, en marga grunar að hún stjórni fjölmiðlasirkusnum sjálf og hlæi alla leið í bankann þegar myndböndin verða gefin út.


Tengdar fréttir

Vel skipulagt kynlífshneyksli Playboy-kanínu

Í lok maí er von á kynlífsmyndbandi frá fyrrum Playboy-kanínunni Kendru Wilkinson en margt bendir til þess að hún hafi lagt blessun sína á útgáfuna - þrátt fyrir hótanir um málsókn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×