Öflugustu tvíeykin í Hollywood 6. maí 2010 20:00 John Wayne og John Ford.
Margir af fremstu leikstjórum heims hafa bundist miklum tryggðarböndum við einn ákveðinn leikara. Þekktasta parið er eflaust Robert De Niro og Martin Scorsese en slík sambönd eru alls ekki óalgeng. Kvikmyndatímaritið Empire tók nýverið saman fjörutíu helstu sambönd leikara og leikstjóra. Af nægu er að taka í þeirri upptalningu og þótt heimsbyggðin þekki kannski einna helst til amerískrar og breskrar samvinnu má ekki gleyma hinu gjöfula samstarfi japanska meistarans Akira Kurosawa og stórstjörnunnar Toshiro Mifune en saman gerðu þeir sextán kvikmyndir, í þeim hópi er auðvitað Sjö samúræjar. Þá væri það hálfgerð sögufölsun ef dálæti Federico Fellini á ítalska eðaltöffaranum Marcello Mastroianni væri ekki talið með, þeir gerðu sex myndir saman, sú frægasta er án nokkurs vafa 8 1/2 vika.Til HollywoodAlfred Hitchcock og James Stewart.Martin Scorsese er þekktur fyrir að taka ástfóstri við einn ákveðinn leikara. Fyrstur var Harvey Keitel, svo kom De Niro og nú er það Leonardo DiCaprio sem Scorsese hringir fyrst í þegar hann langar að gera bíómynd. Scorsese hefur sagt að leikarar veiti sér við kvikmyndagerð og það er fullsannað að fáum tekst jafn vel að ná fram því besta úr leikhópnum og Martin Scorsese.Annar slíkur leikstjóri væri til að mynda Alfred Hitchcock. Spennusagnameistarinn gerði fjórar myndir með Cary Grant, þeirra þekktust er án nokkurs vafa njósnamyndin North By Northwest. Hitchcock hafði einnig mikið dálæti á Jimmy Stewart og gerði einnig fjórar myndir með honum, þar á meðal meistarastykkið The Rear Window.David Lean, sem er þekktur fyrir „stórmyndir" sínar, hallaði sér yfirleitt upp að Alec Guinness. Og kannski ekkert skrýtið. Guinness er einn besti leikari hvíta tjaldsins, fyrr og síðar. Kvikmyndir á borð við Brúin yfir Kwai-fljótið, Arabíu-Lárens og Oliver Twist eru fyrir löngu skráðar á spjöld kvikmyndasögunnar og samstarf Guinness og Leans var með því blómlegra sem þekkist.Kúrekar og furðufulgarDavid Lean fylgist með því þegar Alec Guinness er breytt í Fagin fyrir Oliver!Tim Burton hefur ekki mátt hugsa um kvikmyndagerð án þess að nafn Johnny Depp komi þar við sögu. Sjö myndir hafa þeir gert saman, sú síðasta var Lísa í Undralandi. Burton og Depp svipar mjög saman, eru hæfilega skrýtnir og virðast deila sömu viðhorfum til lífsins.Hið sama verður ekki sagt um frumkvöðulinn John Ford og kúrekahetjuna John Wayne. Ford var harður demókrati en Wayne studdi Repúblikanaflokkinn af miklum móð. Ford var síður en svo mannvinur, hann nánast lamdi Wayne áfram og píndi út úr honum frammistöðu á hestbaki sem aðdáendur kúrekamynda gleyma seint. Þessir ólíku menn - Wayne hafði orð á sér fyrir að vera öðlingur en Ford var lýst sem drykkjusjúku írsku fífli - gerðu þó saman 21 mynd á 24 árum, sú frægasta er The Searchers.Langur listiFellini og Mastroianni á tökustað.Eins og áður segir er listi Empire yfir farsæl sambönd leikara og leikstjóra ansi langur. Á honum er að finna tvíeyki líkt og Spike Lee og Denzel Washington, Tom Hanks og Steven Spielberg og Tarantino og Umu Thurman. Steven Soderbergh og George Clooney hafa gert saman sex myndir og ríkisstjórinn í Kaliforníu, Arnold Schwarzengger, var alltaf upp á sitt besta þegar James Cameron var við stjórnvölinn.Ekki má heldur gleyma David Fincher og Brad Pitt, einu flottasta tvíeyki seinni tíma. Pitt er aldrei betri en þegar hann vinnur með Fincher og það verður því að teljast gott slúður sem gengur nú ljósum logum um kvikmyndaborgina að Brad Pitt ætli að leika Mikael Blomkvist í amerísku útgáfunni af Millenium-þríleik Stieg Larsson.freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Menning Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Lífið Smakkaði skötu í fyrsta sinn undir eftirliti sérfræðinga Lífið Fleiri fréttir Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira