Lífið

300. útsending KR-útvarpsins

KR-útvarpið Þröstur Emilsson og Bogi Ágústsson við störf í KR-útvarpinu með kaldan á kantinum.
KR-útvarpið Þröstur Emilsson og Bogi Ágústsson við störf í KR-útvarpinu með kaldan á kantinum.

Útvarp KR, FM 98,3, fagnar þeim merka áfanga að senda út sína 300. útsendingu á fimmtudag þegar KR tekur á móti Breiðabliki í Frostaskjóli.

„Þetta byrjaði 1999. Þá tók yfir ný stjórn í KR-klúbbnum. Daníel Guðlaugsson tók við sem formaður og hann fékk þessa hugmynd. Það voru síðan ég og Sigurjón M. Egilsson sem fengum það hlutverk að athuga hvort þetta væri framkvæmanlegt,“ segir útvarpsstjórinn Höskuldur Höskuldsson.

Margir af kunnustu frétta- og blaðamönnum þjóðarinnar hafa komið að útvarpinu. Einnig hafa margir stigið þar sín fyrstu skref sem lýsendur fótboltaleikja. Þar má nefna þjálfarana Heimi Guðjónsson, Guðmund Benediktsson, Willum Þór Þórsson og Pétur Pétursson, auk Andra Sigþórssonar og Kristins Kjærnested. Í sumar hafa þessir staðið vaktina:

Þröstur Emilsson, Bogi Ágústsson, Sigurður Pétur Harðarson, Freyr Eyjólfsson, Ágúst Bogason, Hallgrímur Indriðason og Haukur Holm.

Fyrstir til að lýsa í KR-útvarpinu voru þeir Kristinn Kjærnested og Pétur Pétursson. Draumurinn um að fá Bjarna Fel til að lýsa rættist í sumar og síðast lýsti hann leik Eyjamanna og KR-inga. Hann verður aftur við hljóðnemann á fimmtudaginn.

„Við höfum verið með góðan hóp með okkur sem hefur verið tilbúinn til að starfa með okkur,“ segir Höskuldur. „Sumir sem fóru líka af stað með útvarp árið 1999 eins og Framararnir héldu það ekki út en okkur finnst þetta vera orðinn partur af félaginu að halda úti þessu útvarpi. Nú er komið tólfta starfsárið og ég held að við séum ekkert að fara að hætta í bráð.“ - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.