Lífið

Vill fá hrós fyrir leik sinn

Smekkleg Chloé Sevigny vill frekar fá hrós fyrir góðan leik en góðan fatasmekk.
Smekkleg Chloé Sevigny vill frekar fá hrós fyrir góðan leik en góðan fatasmekk.

Chloé Sevigny hefur lengi þótt ein best klædda kona heims og hannar einnig eigin fatalínu í samstarfi við hönnunarmerkið Opening Ceremony. Sevigny segist þó heldur vilja fá hrós fyrir góða frammistöðu á hvíta tjaldinu en fyrir fötin sem hún klæðist.

„Ég er ánægð að hafa verið unglingur á tíunda áratugnum þegar heimurinn var enn laus við netið og bloggin, þá var ekki allt svona uppi á yfirborðinu. Ætli ég sé ekki smekkleg, en ég vildi að fólk kæmi upp að mér og segði:

„Þú stóðst þig mjög vel í þessu hlutverki," heldur en að það hrósaði mér fyrir fataval. Það pirrar mig."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.