Lífið

Birta skilaboð til hjákonunnar

Rachel Uchitel átti í sambandi við Bones leikarann David Boreanaz áður en hún hitti Tiger Woods.
Rachel Uchitel átti í sambandi við Bones leikarann David Boreanaz áður en hún hitti Tiger Woods.

Tímaritið Radar birti nýverið röð smáskilaboða sem þeir segja Bones leikarann David Boreanaz hafa sent Rachel Uchitel, sem þekktust er fyrir að vera hjákona Tiger Woods.

Boreanaz og Uchitel áttu í sambandi stuttu áður en Woods kom til skjalanna, en Boreanaz átti á þeim tíma von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni. Uchitel sagði skilaboðin hafa verið tekin úr samhengi og að samband hennar við leikarann hafi verið innilegra en skilaboðin bera vitni um.

„Ég hef undir höndum myndbrot sem hann sendi mér þar sem hann tjáir mér ást sína. Ég sleit sambandinu að lokum því ég treysti honum ekki fullkomlega," sagði Uchitel.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×